Fara í efni

Starfsendurhæfing VIRK

Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði.

Tilgangur með þjónustu á vegum VIRK er að aðstoða fólk við að komast til vinnu. Um er að ræða markvissa einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem krefst fullrar þátttöku viðkomandi einstaklings. 

Einstaklingur sem óskar eftir þjónustu VIRK þarf að byrja á að panta tíma hjá lækni og ræða við hann hvort starfsendurhæfing hjá VIRK sé raunhæfur kostur. 

Meginskilyrðin fyrir starfsendurhæfingu:
  • Að viðkomandi geti ekki sinnt starfi sínu að hluta eða öllu leyti eða tekið þátt á vinnumarkaði vegna hindrana af völdum heilsubrests sem rekja má til veikinda eða slysa. Um er að ræða fjarvistir frá vinnu í lengri tíma vegna heilsubrests af andlegum eða líkamlegum toga.
  • Að markmið einstaklings sé að verða aftur virkur þátttakandi á vinnumarkaði, eða auka þátttöku á vinnumarkaði, svo fljótt sem verða má.
  • Að geta og vilji sé til staðar til að taka markvissan þátt í starfsendurhæfingunni og fylgja þeirri áætlun sem þar er sett fram.

Sjá nánar um rétt til þjónustu hjá VIRK.

Starfsemi VIRK 

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður er sjálfseignarstofnun stofnuð árið 2008 af helstu samtökum stéttarfélaga og atvinnurekenda á vinnumarkaði. Starfsemin er fjármögnuð af atvinnurekendum, lífeyrissjóðum og ríkisvaldinu.

VIRK vinnur að starfsendurhæfingu samkvæmt lögum 60/2012 í samstarfi við stéttarfélög, atvinnurekendur, lífeyrissjóði, þjónustuaðila í starfsendurhæfingu og stofnanir velferðarkerfisins. VIRK leggur mjög mikið uppúr góðu samstarfi við aðrar stofnanir innan velferðarkerfisins. 

Þjónusta VIRK er til staðar á öllum helstu þéttbýlisstöðum landsins, er einstaklingsmiðuð og einstaklingum að mestu að kostnaðarlausu. Á vegum VIRK starfa um 60 sérhæfðir ráðgjafar og atvinnulífstenglar staðsettir hjá stéttarfélögum víða um land og í Borgartúni 18 sem fylgja notendum þjónustunnar allan starfsendurhæfingarferilinn og hvetja þá áfram. 

VIRK á í miklu og góðu samstarfi við fagfólk um allt land, um 600 þjónustuaðilar eru í samstarfi við VIRK, og leggur áherslu á að nýta fagfólk á hverju svæði fyrir sig og þróa úrræði sem henta þeim fjölbreytta hópi sem nýtir sér þjónustu VIRK. 

Getum við bætt efni síðunnar?

Hafa samband