Fara í efni

Siðareglur ráðgjafa VIRK

- Þannig vinnum við

Á vordögum 2015 vann hópur ráðgjafa og sérfræðinga hjá VIRK að gerð siðareglna fyrir ráðgjafa VIRK sem starfa hjá stéttarfélögum um allt land. Til liðs við hópinn var fenginn siðfræðingur frá Háskóla Íslands sem leiðbeindi og gaf góð ráð.

Flestar starfsstéttir hafa siðareglur sem umgjörð um starf sitt. Tilgangur þeirra er að leiðbeina um góða og samræmda framkvæmd og veita leiðsögn um hvernig bregðast eigi við þegar siðferðileg álitamál koma upp í starfi. Með siðareglum viljum við styrkja fagleg vinnubrögð, efla traust og skýra ábyrgð ráðgjafa.

Á fræðsludögum ráðgjafa VIRK sem haldnir voru í maí 2015 kynnti vinnuhópurinn drög að reglunum og allir ráðgjafar fengu tækifæri til að viðra hugmyndir sínar og koma með tillögur og ábendingar um hvað betur mætti fara.

Siðareglurnar voru síðan gefnar út í október og innleiddar á fræðsludögum ráðgjafa haustið 2015. Þær hanga uppi á skrifstofum ráðgjafa og eru einnig aðgengilegar einstaklingum í þjónustu á starfsstöðum þeirra sem og á heimasíðu VIRK.

VIRK er stolt af þessum siðareglum og hve margir áttu aðkomu að gerð þeirra. Siðareglurnar aðstoða ráðgjafa við að taka heillavænlegar ákvarðanir, efla fagmennsku í samskiptum, skerpa á hugsjónum og styrkja störf ráðgjafa VIRK um allt land.

Siðareglurnar má sjá hér

Getum við bætt efni síðunnar?

Hafa samband